...
Við bjóðum gesti okkar hjartanlega velkomna á Austurland til að njóta stórbrotinnar austfirskrar náttúru, menningar og mannlífs. Við höfum fjöllin og firðina, heiðarnar og dalina, jöklana, vötnin og fossana að ógleymdum fallegum kaupstöðum og sveitabýlum. Möguleikarnir eru óteljandi. Hér er fyrsta flokks þjónusta fyrir fundi, ráðstefnur, ævintýri og afslöppun allan ársins hring.
Hjá Austurför leggjast allir á eitt við að uppfylla væntingar þínar og við reynum að gera gott betur en það. Við sérsníðum ferðina að þínum óskum, það sem þér dettur í hug viljum við gera að veruleika og ef þú hefur ekki hugmyndirnar þá komum við með þær.
Okkur finnst gaman að koma á óvart!
Leggðu upp í Austurför - þú munt ekki sjá eftir því.
|